Podchaser Logo
Home
Hvað er frásögn

Hvað er frásögn

Released Sunday, 11th November 2018
Good episode? Give it some love!
Hvað er frásögn

Hvað er frásögn

Hvað er frásögn

Hvað er frásögn

Sunday, 11th November 2018
Good episode? Give it some love!
Rate Episode

Þáttaröð um frásagnir í mannlífinu, frá sjónarhorni heimspeki, bókmenntafræði, stjórnmálafræði, sálarfræði, sálgreiningar, náms- og starfsráðgjafar, sagnfræði, auglýsingafræða, kvikmynda. Eftir því sem við vitum best, einkennir það mannkynið um fram aðrar dýrategundir að geta sagt sögur. Það er töluvert andlegt afrek að geta raðað atburðum í tímaröð, þar sem hvert atvik leiðir til hins næsta og úr verður rökleg frásögn. Allir sem ekki búa við vitsmunalega skerðingu af einhverju tagi hafa þessa hæfni. Frásögnin gerir manneskjunni kleift að setja sjálfa sig á svið í tímanum, gera áætlanir, ímynda sér framvindu óorðinna atburða, o.m.fl. Að mörgu leyti er hún forsenda skilnings, ekki síst á fyrirbærum sem þróast og breytast með tímanum. Manneskjan er umvafin sögum frá vöggu til grafar, allt frá ævintýrunum sem barninu eru sögð fyrir svefninn, til morðgátna sem leystar eru í sjónvarpsþáttum á hverju kvöldi. Stjórnmálamenn segja sögur, sem stundum eru fjarri raunveruleikanum en hafa mikinn sefjunarmátt. Tekist er á um hvernig eigi að segja sögu tiltekinna atburða og ráða pólítískar skoðanir eða hagsmundir oft ferðinni í því sambandi. Þjóðir, þjóðflokkar, ættbálkar og hópar af ýmsu tagi, að ógleymdu mannkyninu öllu, eiga sér sögu, sem er hluti af sögu reikistjörnunnar og lífsins á henni. Það er hlutverk vísinda og fræða að segja þessa sögu, en við skiljum heiminn betur ef við getum sett hann í sögulegt samhengi. Hver einstaklingur á sér líka sína sögu sem er einmitt einstök. Þótt hann lifi í núinu, getur fortíðin sótt á og framtíðin vakið kvíða. Það getur verið mikilvægt fyrir hann að henda reiður á eigin sögu til að ná betri tökum á tilveru sinni. Eins er það upplýsandi að þekkja sögu sem flestra annarra, því mannlegt hlutskipti er margs konar. Skilningur á stöðu sem flestra, ekki síst þeirra sem eru hvað ólíkastir manni, víkkar því út vitundina um heiminn og tilveruna. Markmið þáttaraðarinnar er að ræða um frásagnir frá sjónarmiði margvíslegra fræða og í ólíku samhengi. Meðal annars verður rætt við bókmenntafræðinga, guðfræðinga, sálfræðinga, rithöfunda, kvikmyndagerðarmenn, námsráðgjafa, stjórnmálafræðinga og sagnfræðinga.Í fyrsta þætti ræða þeir saman Torfi Túlíníus og Ævar Kjartansson.

Show More
Rate

Join Podchaser to...

  • Rate podcasts and episodes
  • Follow podcasts and creators
  • Create podcast and episode lists
  • & much more

Episode Tags

Do you host or manage this podcast?
Claim and edit this page to your liking.
,

Unlock more with Podchaser Pro

  • Audience Insights
  • Contact Information
  • Demographics
  • Charts
  • Sponsor History
  • and More!
Pro Features