„Alltaf þegar ég vaknaði á morgnana og dró gardínurnar frá herbergisglugganum þá sá ég bara fjöllin svo ég dró aftur fyrir og fór að gráta. Ég sagði mömmu að ég vildi fara aftur heim, að ég vildi ekki búa hérna.“Í þessum þriðja og síðasta þætti um lífið á Tálknafirði er rætt við innflytjendur og fjallað um alþjóðleg tengsl Tálknafjarðar sem eru mikil og teygja sig langt aftur í aldir.