Náttúran, fólkið, kyrrðin, pollurinn og erótískar skáldsögur. Þetta og fleira til laðar fólk til Tálknafjarðar. Atvinna er grundvallaratriði, slúðrið getur verið hvimleitt en samheldnin vegur upp á móti. Íbúum fækkar þrátt fyrir uppgang og húsnæði er af skornum skammti en Tálknfirðingar gefast ekki upp. Fjörðurinn heldur. Þetta er fyrsti þáttur af þremur um lífið á Tálknafirði. Viðmælendur: Margrét Magnúsdóttir, Guðlaugur Albertsson, Eva Dögg Jóhannesdóttir, Jóhanna Eyrún Guðnadótir, Ársæll Níelsson,Kristinn Hilmar Marínósson, Guðmundur Björn Þórsson, Sindri Snær Ingvason, Ægir Örn Ingvason, Eydís Hulda Jóhannesdóttir, Heather Sosbee, Guðjón Indriðason og Þór Magnússon.