Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs ræða mikilvægi hönnunar í samfélaginu, nú og í náinni framtíð í tilefni af fyrsta hlaðvarpinu um hönnun og arkitektúr á Íslandi.
Ragna Fróðadóttir, textílhönnuður, verkefnastjóri hjá Li Edelkoort Inc. og Magnea Einarsdóttir, fatahönnuður, stofnandi og eigandi fatamerkisins MAGNEA ræða um fatahönnun, textíl og tækni, sjálfbærni - og von.
Valdís Steinarsdóttir vöruhönnuður, sem farið hefur óhefðbundnar leiðir og Halldór Eldjárn, listamaður sem vinnur með tónlist, forritun, vísindi og hönnun ræða um sköpun, tilraunir, tækni, nýjar leiðir - og trylltan áhuga. Hlín Helga Guðlaugsdó