Fyrir tíu árum féllu íslensku bankarnir einn af öðrum á nokkrum dögum eins og dómínókubbar. Íslenska ríkið tók yfir rekstur bankanna en enginn sá fyrir hverjar afleiðingarnar yrðu fyrir íslenskt samfélag og sjálfsmynd landsmanna. Atburðirnir gerðust hratt og óvissan var mikil. Í þáttunum Nokkrir dagar í frjálsu falli verða atburðir daganna í kringum mánaðarmótin september-október árið 2008 rifjaðir upp. Viðmælendur í þáttunum segja frá sýn sinni á hræingarnar og velta vöngum yfir óvissunni sem þá ríkti í samfélaginu. Umsjón: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Guðni Tómasson.
Podchaser is the ultimate destination for podcast data, search, and discovery. Learn More