Á 17. júní er til siðs að kaupa blöðrur fyrir börn. Þunnar álblöðrur, skreyttar teiknimyndapersónum sem fljóta upp á við af sjálfsdáðum. Slík blaðra er fyllt með eðalgasinu Helíum og þó Helíum sé næst algengasta frumefnið í heiminum er það ekki bara missir fyrir barnið þegar blaðran fýkur út í 17. júní rokið, það er missir fyrir jörðina. Í þættinum er saga frumefnisins Helíum rakin frá innviðum jarðarinnar og lengst út í geim. Viðmælendur í þættinum eru Viðar Guðmundsson, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands og Árni Johnsen, læknir. Umsjón: Snorri Rafn Hallsson og Tómas Ævar Ólafsson.
Podchaser is the ultimate destination for podcast data, search, and discovery. Learn More