Michael Jackson sendi frá sér sína síðustu stúdíóplötu árið 2001 og bar hún nafnið Invincible. En var hann ósigrandi? Í þessum þætti skoðum við feril Michael Jackson í kringum aldamótin er hann háði baráttur á ýmsum vígstöðum og fór meðal annars í sjálfskipaða útlegð til Arabalanda.