RÚV
Hundrað ár, dagur ei meirHugmyndasaga fullveldisins. Tíu þátta röð sem fjallar um fyrstu öld fullveldis Íslendinga í ljósi hugmyndasögunnar. Í hverjum þætti eru tilteknir hugmyndastraumar fullveldissögunnar raktir til fortíðar og framtíðar með hliðsjón af einum ákveðnum viðburði sem telja má til marks um þær hugmyndir sem um ræðir. Á mælistiku slíkrar hugmyndasögu eru hundrað ár örstuttur tími.Leitað er fanga hjá viðmælendum, í safni útvarps, hugmyndasögu, heimspeki, fræðum, bókmenntum og listum til að varpa ljósi á víðara samhengi þeirra atburða sem áttu sér stað á síðustu hundrað árum - atburðum sem eru langt í frá fjarlæg fortíð, heldur nýliðinn samtími sem á brýnt erindi við framtíðina.Umsjón: Marteinn Sindri Jónsson.