Iðnaðarrokk er ný sex þátta sería á Rás 2 þar sem farið verður yfir sögu rokksins frá því að það var byltingarkennd tónlistarstefna um miðja síðustu öld en varð síðar að miklum gróðaiðnaði útgáfufyrirtækja og spilltra umboðsmanna sem léku sér að sínum ofdekruðu og uppdópuðu stjörnum. Einnig verður litið á það hvernig framfarir í tækni höfðu áhrif á framrás rokksins, bæði til góðs og ills. Einblínt verður á það fyrirbæri sem íslenskir rokkblaðamenn töluðu um í niðrandi tón og kölluðu „iðnaðarrokk“. Einnig verður leitast við að svara spurningunni miklu: Er rokkið endanlega dautt? Umsjón: Flosi Þorgeirsson.
Podchaser is the ultimate destination for podcast data, search, and discovery. Learn More