Michael Jackson sendi frá sér tvöfaldan geisladisk árið 1995 sem bæði innihélt nýtt og áður útgefið efni. Ef til vill var diskurinn tilraun til að minna á veldi konungsins en hann kom út í kjölfar ásakana á hendur Michael Jackson um kynferðislega áreitni gegn ungum dreng. Og þá tók að hrikta í stoðum konungsveldisins.